Í dag kláraði ég prófin mín og ég tók bæði Landafræði og
Félagsfræði, ekki nóg með það því að ég er búinn að fá einkunn úr
Félagsfræði, fékk nefnilega 7 á lokaprófinu og þar af leiðandi 7 í
lokaeinkunn. En fyrir 2 vikum síðan var ég búinn að bóka fall í
þessum áfanga hversu skringilega sem það hljómar 
Mér gekk líka ágætlega á Landafræðiprófinu og Enskuprófinu og
líklegt er að ég náði þeim báðum þannig að það er hægt að bóka að
ég hafi náð dönsku, ensku, landafræði, félagsfræði, skák og
íþróttum
(sagt með fyrirvara um breytingar
) en þetta ku vera
14 einingar og svo er bara að vona það besta úr Líffræði, Íslensku
og Eðlis og efnafræði 
En samt mikið hrikalega er gaman að vera kominn í sumarfrí
(vinnufrí) og fá smá frí úr skólanum.
Bergdísi gekk líka vel á prófunum og var að hlæja af því í dag
hversu létt landafræðiprófið var eða er hún kannski bara svona
gáfuð 
En Bergdís má nú eiga það að hún reif mig upp í lærdómnum um
þessa helgi. En ég segi bara gleiðilegt sumar við alla og hlakka
til á fimmtudaginn því þá fæ ég einkannirnar mínar afhentar.
En bless í bili.